Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Verkefnasjóður HSK

01.10.2021 - 01.10.2021

Á héraðsþingi HSK árið 2017 var reglugerð Verkefnasjóðs HSK breytt og síðan hefur verið úthlutað tvisvar á ári úr sjóðnum. Umsóknir eiga að berast rafrænt á þar til gerðu umsóknareyðublaði á www.hsk.is fyrir 1. apríl eða 1. október ár hvert. Tilgangur Verkefnasjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði HSK, en sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins. Eingöngu stjórnir aðildarfélaga HSK, deildir aðildarfélaga, sérráð sambandsins og starfsnefndir Skarphéðins geta sótt um styrk úr sjóðnum. Ef félög og nefndir ætla að sækja um styrk úr sjóðnum til fleiri en eins verkefnis þarf að senda sér umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig. Reglugerð um Verkefnasjóðinn má sjá á www.hsk.is. Við fyrri úthlutanir hefur sjóðsstjórn tekið mið af eftirtöldum forsendum: Menntun þjálfara, erlendis 40.000 kr. á einstakling Menntun þjálfara og dómara, innanlands, en þó að hámarki 10.000 kr. á einstakling Nýjungar í starfi/útbreiðsluverkefni/söguritun, að hámarki 40.000 kr. á félag/nefnd/ráð Námskeiðahald, 50 % af útlögðum kostnaði, en þó að hámarki 40.000 kr. á félag/nefnd/ráð Landsliðsval 50.000 kr. á einstakling Afreksstyrkur 120.000 kr. á einstakling Umsóknir vegna landsliðsvals og afreksstyrkja eru teknar fyrir við seinni úthlutun ársins. Taka þarf fram í umsókn hvort sótt sé um afreksstyrk fyrir viðkomandi. Ein af forsendum þess að einstaklingur fái afreksstyrk er að viðkomandi hafi keppt með A landsliði í fullorðinsflokki. Styrkir fyrir landsliðsval eru einnig veittir fyrir val í yngri landslið sérsambanda. Nánari upplýsingar veitir Engilbert í síma 482 1189 og hsk@hsk.is.


Viðburðir

  • 15.07.2025 Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum
  • 15.07.2025 Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

15.05

Sund, héraðsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, héraðsmót fatlaðra

15.07

Frjálsar, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is