Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Vinnureglur varðandi félagatal

1. gr.

Fjöldi félagsmanna í hverju félagi miðast við nýjasta félagatal sem uppfært hefur verið í FELIX félagakerfinu.

2. gr.

ðeins félagar með kennitölu og heimilsfang eru teknir með í útreikningi á lottói og fulltrúafjölda á héraðsþing. Ef félag sendir ekki nýtt félagatal til HSK fyrir 31. desember gildir eldra eintak varðandi fulltrúafjölda á HSK þing.

3. gr.

Fulltrúafjöldi aðildarfélaga á héraðsþingi miðast við fjölda félagsmanna samkvæmt félagatali síðastliðins starfsárs.

4. gr.

Skattur til HSK og lottóúthlutun miðast við gildandi félagatal 15. apríl ár hvert.

5. gr.

Ef félag sendir ekki nýtt félagatal til HSK fyrir 15. apríl, gildir eldra eintak varðandi lóttóúthlutun og skatt til HSK.

6. gr.

Samkvæmt lögum ÍSÍ eru iðkendur félags aðeins þeir sem eru á félagatali viðkomandi félags.

7. gr.

Samkvæmt lögum ÍSÍ verða einstaklingar að vera á félagatali viðkomandi félags til að geta keppt á opinberum mótum fyrir félagið. Því verða félög að skrá alla keppendur á félagatal.

8. gr.

Lottóúthlutun UMFÍ fer 40 % eftir félagatali, og því er mikilvægt að það sé í lagi.

9. gr.

Félög geta hvenær sem er breytt félagatali á FELIX kerfinu, en lottóúthlutun breytist þó ekki eftir 15. apríl ár hvert.

10. gr.

Samkvæmt reglugerð fyrir Landsmót UMFÍ hafa þeir einir rétt til keppni á landsmóti sem eru félagar í aðildarfélagi samkvæmt félagatali og eru löglegir, sbr. reglur viðkomandi sérsambands.

11. gr.

Félög verða að skila starfsskýrslu fyrir 15. apríl ár hvert. Ef félag skilar ekki fyrir þann tíma rennur lóttó félagsins í Verkefnasjóð HSK. (Samþykkt á héraðsþingi á Laugalandi 2007)

Tilbaka 

Viðburðir

  • 01.02.2021 Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ
  • 04.02.2021 ÍÞRÓTTIR ERU FYRIR ALLA, RIG RÁÐSTEFNA
  • 27.02.2021 75. ársþing KSÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK

Úrslit héraðsmóta

25.08

Golf, héraðsmót fatlaðra

25.06

Sund, héraðsmót 2020

13.06

Bláskógaskokk HSK

11.02

Grunnskólamót HSK í glímu 2020

01.02

Bridds, HSK tvímenningur 2020

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Aldursflokkamót HSK í sundi 20..

Grunnskólamót HSK í glímu 2020

HSK mótin í frjálsum innanhúss..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is