Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

11. nóvember 2020

Íþróttaiðkun og Covid-19

Á tímum sem þessum, þegar Covid-19, heldur öllu í heljargreipum, er nauðsynlegt að allir hugsi vel um sig og sína. Íþróttahreyfingin hefur ekki farið varhluta af þessu ástandi sem ríkir. Allar þær takmarkanir sem hafa verið í gildi og eru í gildi, haft mikil áhrif á íþróttahreyfinguna. Áhrifin eru ekki eingöngu fjárhagsleg, heldur einnig hvað varðar allt skipulag og þjónustu við notendur sína, m.a börn og unglinga. Íþróttahreyfingin snýst ekki eingöngu um afreksíþróttir heldur einnig um mikilvægt starf með börnum og unglingum, sem margoft hefur verið bent á að er mikilvægt forvarnarstarf. Þess vegna hefur íþróttahreyfingin gert allt sem í hennar valdi stendur til að reyna að halda úti öllu mögulegu starfi sem hægt er, í takt við gildandi sóttvarnarreglur. Ef ekki er hægt að koma saman til æfinga, hafa þjálfarar verið hvattir til að halda sambandi við iðkendur sína í gegnum samfélagsmiðla eða á annan hátt, útvega þeim æfingaprógrömm til að æfa eftir og hvetja til hreyfingar.

Það sem við, sem stöndum í framlínu íþróttahreyfingarinnar, óttumst mest er að mikið brottfall verði úr íþróttaiðkun vegna þessa ástands, ekki eingöngu vegna þess að ekki er hægt að koma saman og stunda æfingar heldur einnig vegna fjárhagslegrar stöðu foreldra og forsvarsmanna iðkenda. Vegna þessa hafa stjórnvöld sett fjármagn í það verkefni að koma til móts við foreldra og forráðamenn, barna og unglinga, sem hafa misst vinnu og eru tekjulág vegna ástandsins í þjóðfélaginu og hafa ekki ráð á greiðslu æfingagjalda fyrir börn sín. Framkvæmd þessa verkefnis hefst á næstu dögum og verður þá kynnt hvernig standa beri að umsóknum um stuðning vegna greiðslu æfingagjalda.

Við forsvarsmenn íþróttahreyfingarinnar erum sammála um að allir eigi að geta æft íþróttir, óháð efnahag og félagslegri stöðu. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn séu í góðu sambandi við þau íþróttafélög þar sem börn þeirra stunda æfingar, hafa stundað æfingar eða langar til að stunda æfingar og fari yfir stöðu sína og fái aðstoð til að þau geti gert það áfram. Við munum leitast við að finna lausnir og aðstoða á allan hátt sem við getum til að öll börn og unglingar geti stundað íþróttir. Það þarf enginn að kvíða því að hafa samband og ræða stöðu sína, það hafa allir hafa skilning á aðstæðum. Ráðherra íþróttamála og félagsmálaráðherra hafa lýst því yfir að þeir muni vinna með íþróttahreyfingunni svo hún komist yfir þetta ástand og geti gefið öllum tækifæri til að stunda íþróttir. Það er viðurkenning á starfi íþróttahreyfingarinnar og mikilvægi þess forvarnargildis sem þær eru.

Stöndum saman á þessum erfiðu tímum og hugsum um börnin og unglingana og gefum þeim öllum tækifæri á að stunda íþróttir, við sitt hæfi.

 

Helgi Sigurður Haraldsson formaður Frjálsíþróttadeildar UMF Selfoss og varaformaður Héraðssambandsins Skarphéðins.

 

Viðburðir

  • 13.06.2023 Héraðsleikar og Aldursflokkamót HSK
  • 18.06.2023 Bláskógaskokk HSK
  • 23.06.2023 Landsmót UMFÍ 50 Plúss
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

03.08

Blak, hraðmót kvenna 2023

25.06

Sund, héraðsmót 2023

19.05

Blak, héraðsmót drengja 2023

19.05

Blak, héraðsmót stúlkna 2023

01.05

Bridds, tvímenningur

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Héraðsmót fatlaðra í golfi

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

13.06

Frjálsar, héraðsleikar og aldu..

18.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is