Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

30. maí 2022

Ståhl bætti 33 ára gamalt vallarmet Vésteins

Sl. laugardag fór fram 75 ára afmælismót FRÍ, Selfoss Classic á Selfossvelli. Mótið tókst frábærlega og fjöldi fólks fylgdist með keppninni.

Hápunkt­ur móts­ins var kringlukast­skeppni á heims­mæli­kv­arða þar sem heims- og Ólymp­íu­meist­ar­inn, Daniel Ståhl bar sigur úr býtum. Ståhl náði sínum ásbesta árangri og bætti vallarmet þjálfara síns, Vésteins Hafsteinssonar með kast upp á 69,27 metra. Æfingafélagi hans Simon Pettersson var annar með kast upp á 65,94 metrar sem er einnig hans ársbesti árangur. Íslandsmethafinn Guðni Valur Guðnason (ÍR) var þriðji með kast upp á 64,87 metra sem er hans ársbesti árangur.

Í sleggjukasti höfðu Svíarnir betur. Grete Ahlberg bætti sinn persónulega árangur með kast upp á 69,63 metra. Elísabet Rut Rúnarsdóttir (ÍR) kastaði 62,84 metra og náði því í sjöttu og síðustu tilraun. Hjá körlunum kastaði Ragnar Carlsson 77,00 metra og bætti einnig sinn persónulega árangur. Hilmar Örn Jónsson (FH) var ekki langt frá sínum ársbesta árangri en hann kastaði í gær 74,95 metra.

Í 100 metra hlaupi kvenna var það Hollendingurinn Naomi Sedney (FH) sem kom fyrst í mark á tímanum 11,51 sek. Í öðru sæti var Júlía Kristín Jóhannesdóttir (Breiðablik) á tímanum 12,21 og í þriðja sæti var Hildigunnur Þórarinsdóttir (ÍR) á tímanum 12,29 sek. Vindurinn var +6,1 í hlaupinu og því yfir leyfilegum mörkum.

Í 100 metra hlaupi karla var það Kolbeinn Höður Gunnarsson (FH) sem kom fyrstur í mark á tímanum 10,64 sek. Í öðru sæti var Anthony Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ármann) á tímanum 10,83 sek. og Bergur Sigurlinni Sigurðsson í því þriðja á tímanum 10,97 sek. Vindurinn var +5,0 í hlaupinu og því yfir leyfilegum mörkum.

Úrslit má finna hér.  Myndir má finna hér.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 13.06.2023 Héraðsleikar og Aldursflokkamót HSK
  • 18.06.2023 Bláskógaskokk HSK
  • 23.06.2023 Landsmót UMFÍ 50 Plúss
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

03.08

Blak, hraðmót kvenna 2023

25.06

Sund, héraðsmót 2023

19.05

Blak, héraðsmót drengja 2023

19.05

Blak, héraðsmót stúlkna 2023

01.05

Bridds, tvímenningur

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Héraðsmót fatlaðra í golfi

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

13.06

Frjálsar, héraðsleikar og aldu..

18.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is