Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

2. apríl 2012

Frjálsíþróttaþing á Selfossi var velheppnað

Tveggja daga þing Frjálsíþróttasambands Íslands var haldið í Fjölbrautaskóla Suðurlands 16. – 17. mars síðastliðinn. Að þessu sinni var gestgjafi þingsins Sveitarfélagið Árborg og væsti sko ekki um þinggesti í rúmgóðum vistarverum fjölbrautaskólans.

Frjálsíþróttaráð HSK sendi fríðan hóp þingfulltrúa á þingið, þau voru: Magnús Jóhannsson, Þuríður Ingvarsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir, Kári Jónsson, Ingvar Garðarsson, Markús Ívarsson, Steinunn Emelía Þorsteinsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Gunnhildur Hinriksdóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Benóný Jónsson. Þingforsetar á þinginu voru þeir Guðmundur Kr. Jónsson og Helgi S. Haraldsson en Örn Guðnason ritaði þinggerð. Unnu þeir störf sín af miklu öryggi og var almenn ánægja ríkjandi með sköruglega verkstjórn þingsins.

Fjölmörg mál voru tekin til afgreiðslu á þinginu, m.a. var ákveðið að leggja á 1.000 kr. þjónustugjald á iðkendur frjálsíþrótta á landinu sem greiðist til FRÍ einu sinni á ári. Á þinginu voru samþykktar reglur um ofurhlaup og reglur um framkvæmd götuhlaupa. Þá var einnig samþykkt hækkun á gjaldi vegna félagaskipta íþróttamanna, fór gjaldið í 5.000 kr. Í skýrslu stjórnar kom fram að sambandið var rekið með örlitlum hagnaði á síðustu tveimur árum, en afkoma þess engu að síður erfið og skuldir til trafala.

 Á þinginu var kosin ný stjórn FRÍ. Formaður var kosinn Jónas Egilsson, en aðrir í stjórn voru kjörin: Albert Þór Magnússon, Benóný Jónsson, Gunnar I. Birgisson og Lóa Björk Hallsdóttir. Í varastjórn voru kosin þau: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Eiríkur Mörk Valsson, Fríða Rún Þórðardóttir, Hreinn Ólafsson og Mekkin Guðrún Bjarnadóttir.

Á þinginu voru HSK félagar sæmdir gullmerki FRÍ, það voru þeir Vésteinn Hafsteinsson Umf. Selfoss og bræðurnir Sigurður Jónsson Umf. Selfossi og Kári Jónsson Umf. Laugdæla.  Þá fékk Hafsteinn Jóhannesson, sem nú er búsettur á Selfossi gullmerki sambandsins. Þá hlutu þau Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, Sigríður Anna Guðjónsdóttir Umf. Selfossi og Sigurbjörn Árni Arngímsson, formaður Umf. Laugdæla silfurmerki FRÍ. Eftirtaldir voru heiðraðir með bronsmerki: Freyr Ólafsson upprunalega frá Dímon en nú aðalsprautan í frjálsíþróttastarfi Ármanns, Jón Jónsson Umf. Heklu og fyrrum formaður HSK, Ólafur Guðmundsson úr Laugdælum og formaður mótanefndar FRÍ og Þuríður Ingvarsdóttir Umf. Selfossi.

Benóny Jónsson, formaður frjálsíþróttaráðs HSK

Mynd:Greinarhöfundur á þingi FRÍ á Selfossi.

Viðburðir

  • 20.01.2021 Skýrsla um starf félaga 2020
  • 20.01.2021 Tilnefning til sérverðlauna HSK
  • 20.01.2021 Íþróttakarl og íþróttakona HSK 2020
  • 01.02.2021 Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ
  • 27.02.2021 75. ársþing KSÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK

Úrslit héraðsmóta

25.08

Golf, héraðsmót fatlaðra

25.06

Sund, héraðsmót 2020

13.06

Bláskógaskokk HSK

11.02

Grunnskólamót HSK í glímu 2020

01.02

Bridds, HSK tvímenningur 2020

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Aldursflokkamót HSK í sundi 20..

Grunnskólamót HSK í glímu 2020

HSK mótin í frjálsum innanhúss..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is