Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Ráðstefnan Konur og íþróttir: Hvað segja vísindin?

07.03.2025 - 07.03.2025

Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna standa ÍSÍ, UMFÍ og Háskólinn í Reykjavík fyrir ráðstefnunni Konur og íþróttir: Hvað segja vísindin? Ráðstefnan fer fram í HR föstudaginn 7. mars 2025, hefst kl.13:30 og stendur til kl.16:00. Þó að ráðstefnan sé um konur og íþróttir eða íþróttakonur sem viðfangsefni í rannsóknum, þá er hún ekki síður ætluð körlum enda eru þeir fleiri í þjálfara- og stjórnendastöðum í íþróttahreyfingunni. ÍSÍ og UMFÍ héldu viðburð í tilefni sama dags í fyrra og ræddu þar um konur í stjórnum félaga, konur í dómgæslu og konur í þjálfun íþróttafélaga. Núna skoðum við hvað fræðin segja okkur um konur og íþróttir og höfum fengið til liðs við okkur unga og efnilega vísindamenn úr hérlendum háskólum. Dagskrána má sjá hér Sala miða á ráðstefnuna hefst 1. mars næstkomandi og er takmarkaður sætafjöldi, en einnig verður streymt frá viðburðinum. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er laugardaginn 8. mars og er ráðstefnan haldin daginn áður. Dagurinn veitir kjörið tækifæri til að og fagna þeim framförum sem orðið hafa og líta fram á við.


Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is