Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Verkefnið Göngum í skólann

03.09.2025 - 03.09.2025

Nú styttist í að verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) hefjist en það verður sett í nítjánda sinn þann 3. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 1. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða. Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 77 skólar skráðu sig til leiks árið 2024. HSK hvetur skólana á sambandssvæðinu til að taka þátt, en níu þeirra tóku þátt í fyrra. Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Lindu, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfangið linda@isi.is.


Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is