Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Íslands

10.10.2026 - 10.10.2026

Vakin er athygli á viðburðinum Samtal, sem fer fram um allt land laugardaginn 10. október nk. Samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina. Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, hlustað hvert á annað og rætt spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Hugmyndin kviknaði í borðstofunni á Bessastöðum en hefur síðan vaxið og orðið að sameiginlegu verkefni margra. Fjöldi einstaklinga kemur nú að undirbúningi þess, ásamt ungu fólki, skólum, samtökum og stofnunum um land allt. Á heimasíðunni talasaman.is eru upplýsingar um verkefnið og skráningu í samtalið. Samtalið er opið öllum 16 ára og eldri, óháð bakgrunni, stöðu eða pólitískum skoðunum. Þátttaka í verkefninu er ókeypis og ekki þarf að undirbúa sig sérstaklega. Það eina sem þarf að koma með er vilji til að hlusta, taka þátt og deila sjónarmiðum. Samtöl fara fram víða um land og ræðst fjöldi þeirra af þátttöku. Á sumum stöðum verða ef til vill þrjú samtalsborð en á öðrum þrjátíu. Samtölin fara fram samtímis 10. október frá kl. 14:00 til 17:00. Samtalsdagurinn er þó hugsaður sem upphaf, ekki endapunktur. Markmiðið er líka að þróa aðferð sem gerir okkur kleift að koma saman til samtals þegar við teljum þörf á því sem samfélag. Ungt fólk mun leiða samtölin sem fara meðal annars fram í framhaldsskólum um land allt. Hugmyndir og sjónarmið úr samtölunum frá laugardeginum verða dregin saman og miðlað áfram á viðburði í Hörpu sunnudaginn 11. október kl. 14.00. Það er mikilvægt að raddir sem flestra úr íþróttahreyfingunni fái að heyrast á þeim viðburðum sem verða haldnir víða um land og viljum við því hvetja ykkur til þátttöku og um leið að fara þess á leit við ykkur að hvetja aðra innan íþróttahreyfingarinnar til að taka virkan þátt. Vinsamlegast sendið þessi skilaboð áfram til aðildarfélaga innan ykkar vébanda. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins, talasaman.is.


Viðburðir

  • 19.11.2026 Ráðstefna um íþróttastarf barna
  • 20.11.2026 Formannafundur ÍSÍ 2026
  • 20.11.2026 Fjórðungsglíma Suðurlands
  • 24.11.2026 Skráningarfrestur á útgáfuhóp skýrslunnar Rad..
  • 26.11.2026 Ungt fólk hefur talað, hvað ætlum við að gera..
  • 05.12.2026 Íþróttaeldhugi ársins 2026, óskað eftir tilne..
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

20.11

Fjórðungsglíma Suðurlands

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is