Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Reglugerð um héraðsmót HSK í glímu

1. grein:

Héraðsmót HSK í glímu er keppni milli aðildarfélaga HSK í glímu. Úrslit skulu færð á heildarstigatöflu HSK samkvæmt samþykktum héraðsþings HSK. Keppni í einstökum flokkum er jafnframt einstaklingakeppni um héraðsmeistaratitil HSK í viðkomandi flokki.

2. grein:

Glímuráð HSK skal árlega haldaeftirtalin héraðsmót og skal keppt í eftirtöldum flokkum innan viðkomandi móts. a) Héraðsmót karla:  Keppnisflokkar: Karlaflokkur 21 árs og eldri. b) Héraðsmót kvenna: Keppnisflokkar: Kvennaflokkur 17 ára og eldri. c) Héraðsmót stúlkna: Keppnisflokkar: Stúlkur 11 - 16 ára. d) Héraðsmót drengja: Keppnisflokkar: Drengir 11 - 20 ára

3. grein:

Engar hömlur eru settar á fjölda keppenda frá hverju félagi í einstökum keppnisflokkum.

4. grein:

Keppendum í flokki meyja 15 - 16 ára og flokki unglinga 17 - 20 ára er heimilt að keppa upp fyrir sig í aldri um einn flokk.

5. grein:

Glímuráð HSK sér um framkvæmd héraðsmóta, tilnefnir dómara og starfsmenn og útvegar verðlaun. Ráðið sér einnig um að koma úrslitum á framfæri við fjölmiðla og skila skýrslum um það til HSK og GLÍ. 

6. grein:

Glímuráð HSK tilkynnir aðildarfélögum hvar og hvenær mótin eru haldin með minnst mánaðar fyrirvara og ákveður hvenær skráningarfrestur rennur út. Glímuráði er heimilt að fela aðildarfélögum ráðsins að framkvæma héraðsmótin. ( sbr. 5. grein laga um héraðsmót HSK)

7. grein:

Sex fyrstu í hverjum aldursflokki fá stig fyrir sitt félag. 1. sæti gefur 6stig, 2. sæti 5 stig o.s.frv. Það félag sem fær flest stig sigrar á viðkomandi móti. Verði félög jöfn að stigum í efsta sæti deila þau verðlaunum.

8. grein:

Þrír fyrstu úr hverjum aldursflokki fáverðlaunapening. Auk þess eru veittir eftirfarandi farandgripir og gilda um þá reglur um farandgripi HSK, nema Skarphéðinsskjöldurinn og Bergþóruskjöldinn. sem er veittir fyrir sigur í karla- og kvennaflokki og vinnst ekki til eignar. a) Héraðsmót karla: Stigahæsta félag. b) Héraðsmót kvenna: Stigahæsta félag. c) Héraðsmót stúlkna: Stigahæsta félag. d) Héraðsmót drengja: Stigahæsta félag. e) Skarphéðinsskjöldurinn: Veittur þeim sem sigrar í karlaflokki. f) Bergþóruskjöldurinn: Veittur þeim sem sigrar í kvennaflokki.

9. grein:

Keppt skal eftir reglum Glímusambands Íslands.

10. grein:

Reglugerð þessari er aðeins hægt að breyta á aðalfundi Glímuráðs HSK. (Samþykkt á aðalfundi Glímuráðs HSK 7. júni 2001

Tilbaka 

Viðburðir

  • 10.05.2026 Þing Borðtennissambands Íslands
  • 13.05.2026 Héraðsmót HSK í sundi
  • 17.05.2026 Ársþing Judósambands Íslands
  • 21.05.2026 Vormót HSK í frjálsum íþróttum
  • 04.06.2026 Héraðsleikar HSK í frjálsum íþróttum
  • 06.06.2026 Ársþing Glímusambands Íslands
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

21.03

Frjálsar, héraðsleikar innanhú...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

13.05

Sund, héraðsmót

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

04.06

Frjálsar, héraðsleikar

14.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is