Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Reglugerð fyrir kjör íþróttamanns HSK

Reglugerð um kjör á Íþróttamanni HSK

 

1.gr.

HSK mun framvegis verðlauna íþróttakarl HSK og íþróttakonu HSK. 

 

2.gr.

Íþróttanefndir og sérráð HSK skulu skila tilnefningum til stjórnar HSK eigi síðar en 31. desember, ásamt mynd af viðkomandi.  

 

3.gr.

Nefndir og ráð tilnefna bæði íþróttakarl og íþróttakonu í viðkomandi grein. Forsenda þess er að greinin hafi verið stunduð af báðum kynjum og að keppendur viðkomandi greinar hafi verið að ná árangri sem verðskuldar slíka viðurkenningu. Íþróttafólk verður að hafa náð 16 ára aldri, sbr. ákvæði í stefnu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga. Skilyrði fyrir tilnefningu er að íþróttamaður hafi verið löglegur keppandi í aðildarfélagi HSK þegar árangur náðist. Með tilnefningu fylgi greinargerð um íþróttalegan árangur á árinu svo sem met o. fl.   

 

4.gr.

Skili íþróttanefnd eða sérráð ekki tilnefningu á réttum tíma er stjórn HSK heimilt að tilnefna íþróttakarl og íþróttakonu í viðkomandi grein, þannig að þau komi til álita við kjörið. Stjórn HSK er heimilt að tilnefna íþróttafólk í þeim greinum þar sem nefndir og ráð eru ekki starfandi. 

 

5.gr.

Stjórn HSK skal árlega skipa fimm manna valnefnd sem velur íþróttakarl og íþróttakonu HSK, úr röðum þeirra sem tilnefndir eru hjá nefndum og ráðum.    

 

6.gr.

Formleg útnefning íþróttakarls og íþróttakonu HSK fer fram á héraðsþingi ár hvert.   Framkvæmdastjórn eða stjórn HSK sé falið að koma viðurkenningum til allra tilnefndra íþróttamanna frá nefndum eða sérráðum.

 

7.gr.

Með reglugerð þessari eru aðrar reglur um kjör íþróttamanns HSK úr gildi fallnar. 

 

(Samþykkt á héraðsþingi HSK 2018)

 

Tilbaka 

Viðburðir

  • 08.12.2025 Héraðsmót í sveitakeppni í skák
  • 14.12.2025 HSK mót í taekwondo
  • 12.01.2026 Umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

13.11

Blak, héraðsmót karla, fyrri h...

19.10

Borðtennis, héraðsmót 2025

15.10

Blak, hraðmót karla 2025

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

08.12

Skák, sveitakeppni HSK

14.12

Taekwondo, héraðsmót

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is