Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

23. júlí 2025

Skráningar á Unglingalandsmót UMFÍ berist fyrir miðnætti á sunnudag

Nú styttist í Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.

Unglingalandsmót UMFÍ hafa farið fram reglulega frá 1992 og árlega frá 2002 um verslunarmannahelgina. Mótið er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

 

Einstök upplifun

Unglingalandsmót UMFÍ er einstök upplifun fyrir alla fjölskylduna. Samvera og gleði frá morgni til kvölds þar sem allir finna verkefni við sitt hæfi og á sínum forsendum. Allir á aldrinum 11-18 ára geta keppt á mótinu.

 

Hægt að skrá til miðnættis á sunnudag

Skráningu í greinar mótsins lýkur um miðnætti sunnudaginn 27. júlí. Eftir sunnudaginn verður mögulega hægt að bæta við í einhverjar greinar, en það verður háð því hversu mörg pláss eru í boði. Þess vegna verður ekki hægt að ganga að því vísu. 

Unglingalandsmótið er tilvalinn vettvangur til að prófa nýjar greinar. Ef keppandi er ekki með liðsfélaga þá er hægt að skrá sig „án liðs“ og mótshaldari sér um að setja saman lið.

En hvernig breyta þátttakendur skráningu sinni?

Hér eru leiðbeiningar 

 

Keppnisgreinar

Borðtennis - fimleikar – frisbígolf – frjálsar íþróttir – glíma – golf – grasblak – grashandbolti – hestaíþróttir – hjólreiðar – knattspyrna – krakkahreysti – kökuskreytingar – körfubolti – motocross – pílukast – rafíþróttir – skák – stafsetning – sund og upplestur. 

 

Þátttökugjald 9.900 krónur og tjaldstæði innifalið í verðinu

Þátttökugjald á Unglingalandsmóti UMFÍ er 9.900 krónur. Innifalið í verðinu er tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Aðeins þarf að greiða aukalega fyrir rafmagn sem er 5.000 krónur til 27. júlí en hækkar eftir það í 7.500. Hægt er að kaupa rafmagn á heimasíðu UMFÍ.

 

Keppendur fá hettupeysu gefins

Allir þátttakendur HSK fá bláa hettupeysu frá Jakó að gjöf frá HSK. Það er Arionbanki sem er aðalstyrktaraðili HSK, sem gerir þetta mögulegt. Peysan verður afhend í Selinu við íþróttavöllinn á Selfossi mánudaginn 28. júlí frá 17:00 til 19:00.

 

Margir opnir viðburðir í boði

Fjöldi opinna greina og viðburða verður í boði á Unglingalandsmótinu til viðbótar við keppni í 22 íþróttagreinum.

Á föstudeginum verður fótboltafjör fyrir 9-10 ára og leikjagarður.

Eftir setningu mótsins á föstudagskvöld geta mótsgestir farið í badminton LED í íþróttahúsinu, prófað fimleika, farið í sundlaugarpartý, körfuboltapartý, blindrabolta, farið í ringó með allri fjölskyldunni og prófað fjölda greina.

Á laugardeginum og á sunnudag heldur fjörið áfram með sundleikum, leikjagarði, bæjargöngu og mörgu fleiru.

Sjá nánar: 

Dagskrá mótsins

 

Breytingar á greinum á milli ára

Fjöldi þátttakenda í nokkrum greinum hefur breyst á milli ára. Grasblak er ein þeirra greina en þar hefur orðið veruleg fjölgun bæði á þeim sem geta verið innan vallar og í liðum. Þar eru nú fjórir í hverju liði inni á vellinum í stað tveggja áður. Að sama skapi hefur verið bætt við nokkrum greinum í frjálsum íþróttum og keppnisflokkum í frisbígolfi.

 

Tjaldsvæði mótsgesta

Tjaldsvæði fyrir mótsgesti opnar eftir hádegi á fimmtudag. Ef fjölskyldur keppenda vilja koma degi fyrr er hægt að kaupa sig inn á svæðið hjá rekstraraðilum tjaldsvæðisins. Bílum á að leggja utan við tjaldsvæði meðan á mótinu stendur.

Með miða á mótið fylgir aðgangur að keppnisgreinum fyrir einn þátttakanda á aldrinum 11 - 18 ára, aðgangur að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna, alla afþreyingu, tónleika, í sund og fjör fyrir litla og stóra fætur, ömmur, afa og frænkur sem ekki eru á keppnisaldri.

Aðeins þarf að greiða sérstaklega fyrir rafmagn og er það gert í gegnum skráningarkerfi mótsins. Rafmagn kostar 5.000 krónur nú. Frá og með 28. júlí hækkar það í 7.500 krónur.

Því miður er ekki mögulegt að skipta tjaldsvæði Unglingalandsmóts UMFÍ eftir sambandsaðilum. Tjaldsvæðið er engu að síður stórt og ætti að rúma alla.

 

Tónlist og fjölskyldufjör

Allir tónleikar helgarinnar fara fram í Bragganum, sem er við tjaldsvæði mótsgesta. Á föstudagskvöldinu verður þó undantekning þegar þær Ína Berglind og Jóna Þyrí syngja við setningu mótsins á Vilhjálmsvelli kl. 20:00.

Tónleikadagskráin:

Fimmtudagur 31. júlí: DJ Hilmir Dagur Ólafsson og DJ Sigríður Svandís Hafþórsdóttir.

Föstudagur 1. ágúst: Ína Berglind Guðmundsdóttir og Jóna Þyrí Snæbjörnsdóttir syngja á mótssetningu.

Laugardagur 2. ágúst: DJ Ragga Hólm, Stebbi Jak og Hafþór og Júlí Heiðar og Dísa.

Sunnudagur 3. ágúst: Magni Ásgeirsson, DJ Ernir Daði og VÆB.

 

Allar upplýsingar um mótið á www.umfi.is

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 11.02.2026 Aðalfundur Umf. Framtíðarinnar
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • 26.02.2026 Aðalfundur Umf. Þjótanda
  • 28.02.2026 Ársþing Knattspyrnusambands Íslands
  • 15.03.2026 Umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.02

Blak. héraðsmót kvenna

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is