Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

25. ágúst 2025

Verkefnið Göngum í skólann hefst í næstu viku

Nú styttist í að verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) hefjist en það verður sett í nítjánda sinn þann 3. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 1. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 77 skólar skráðu sig til leiks árið 2024.

HSK hvetur skólana á sambandssvæðinu til að taka þátt, en níu þeirra tóku þátt í fyrra.

Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is  eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Lindu, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfangið linda@isi.is.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 11.02.2026 Aðalfundur Umf. Framtíðarinnar
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • 26.02.2026 Aðalfundur Umf. Þjótanda
  • 28.02.2026 Ársþing Knattspyrnusambands Íslands
  • 15.03.2026 Umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.02

Blak. héraðsmót kvenna

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is