Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

7. janúar 2026

Selfyssingurinn Árni Þór var tilnefndur sem Íþróttaeldhugi ársins

Árni Þór Grétarsson, sjálfboðaliði hjá handknattleiksdeild Selfoss, var einn þriggja sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tilnefndi sem Íþróttaeldhuga ársins 2025.

Kallað var eftir tilnefningum úr hreyfingunni og frá landsmönnum og bárust alls 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum. Úr röðum þeirra valdi sérstök valnefnd valið þrjá einstaklinga en auk Árna Þórs eru það Bjarni Malmquist Jónsson, Ungmennafélaginu Vísi og formaður USÚ og Hugrún Hjálmarsdóttir, Íþróttafélaginu Hetti.

Árni Þór hefur verið ómetanlegur burðarás í handboltastarfinu á Selfossi í áratugi. Hann er alltaf til staðar, mætir á alla leiki heima og að heiman og tekur að sér öll þau verkefni sem þarf að sinna, hvort sem það er lýsing á leikjum, auglýsingagerð, aðstoð við ferðalög eða skipulagningu. Hann gerir þetta allt með jákvæðu hugarfari og brosi á vör.

Árni hefur séð um samfélagsmiðla, hlaðvörp, útsendingar á leikjum og verið liðstjóri bæði hjá meistaraflokki og yngri flokkum. Hann ferðast með liðum innanlands og erlendis, tekur þátt í fjáröflunum og er meira og minna í íþróttahúsinu allan daginn. Hann er til fyrirmyndar í samskiptum og hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda ungra iðkenda sem líta upp til hans sem fyrirmynd og leiðtoga.

Árni Þór er dæmi um ósérhlífinn einstakling sem vinnur fyrir félagið af eldmóði og einlægri ástríðu. Hann leitar ekki eftir athygli eða hrósi, heldur vinnur af hreinni elju og hjartahlýju. Með dugnaði sínum, einlægni og góðvild hefur hann haft djúpstæð áhrif á íþróttalífið á Selfossi og verðskuldar sannarlega tilnefningu til Íþróttaeldhuga ársins 2025, segir í greinargerð með valinu.

Tilkynnt var um úrslitin í hófi um kjör Íþróttamanns ársins 2025 og fyrir valinu varð Bjarni Malmquist Jónsson formaður USÚ.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • 28.02.2026 Ársþing Knattspyrnusambands Íslands
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is