Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

8. janúar 2026

Íþróttafólk sérsambanda verðlaunað

Á hverju ári veitir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands viðurkenningar til íþróttamanna og íþróttakvenna sérsambanda ÍSÍ, á sameiginlegu hófi ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna í tengslum við kjör á Íþróttamanni ársins. Að þessu sinni fór hófið fram í Silfurbergi í Hörpu, laugardaginn 3. janúar síðastliðinn.

Íþróttafólk ársins 2025 fékk afhenta veglega verðlaunagripi sem Ólympíufjölskylda ÍSÍ gefur, en þau fyrirtæki sem mynda saman Ólympíufjölskyldu ÍSÍ eru Icelandair, Íslensk getspá og Toyota.

Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu þetta kvöld var Eric Máni Guðmundsson keppandi úr Umf. Selfoss, en hann er Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttamaður ársins.

Tvær afrekskonur voru verðlaunaðar þetta kvöld sem eiga heima á sambandssvæði HSK, en keppa fyrir félög utan héraðs. Þetta eru þær Hildur Maja Guðmundsdóttir fimleikakona ársins og Snæfríður Sól Jórunnardóttir sundkona ársins. Báðar voru þær meðal tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins, en þær náðu frábærum árangri á liðnu ári.

Á vefsíðu ÍSÍ er að finna samantekt yfir íþróttafólk sérsambanda fyrir árið 2025, unnið upp úr greinargerðum frá sérsamböndum ÍSÍ. Einnig er búið að setja inn myndir frá viðburðinum inn á myndasíðu ÍSÍ.

Mynd: Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttafólk ársins, þau Eric Máni Guðmundsson og Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • 28.02.2026 Ársþing Knattspyrnusambands Íslands
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is