Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

19. febrúar 2026

Formannafundur HSK haldinn í kvöld

Formannafundur HSK verður haldinn í Selinu Engjavegi 48 á Selfossi í kvöld, fimmtudaginn 19. febrúar og stendur frá kl. 19:30 til 21:00. Formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga HSK, stjórn HSK og formenn nefnda og sérráða HSK eru boðaðir á fundinn.

Dagskrá formannafundar:

19:30 Fundarsetning

Guðríður Aadnegard formaður setur fund.

19:35 Sjálfboðaliðastörf í hreyfingunni

  • Hvers vegna sjálfboðaliði?

Árni Þór Grétarsson sem tilnefndur var sem íþróttaeldhugi ársins 2025.

  • Hvað geta félögin gert sérstaklega fyrir sjálfboðaliða sína?

Berglind Sveinsdóttir formaður Hestamannafélagsins Sleipnis.

  • Umræður og fyrirspurnir.

20:00 Hvernig náum við betur til ungs fólks?

  • Sara Jóhanna Geirsdóttir formaður Ungmennaráðs UMFÍ. Sara, sem er frá Hvolsvelli, mun fjalla um hvernig félögin geti náð betur til ungs fólks. Hún ætlar líka að segja frá ungmennaráði UMFÍ, þar er ýmislegt að gerast og margt athyglisvert framundan.
  • Umræður og fyrirspurnir.

20:15 Kvöldhressing

20:25 Svæðisstöðvar íþróttahéraða

  • Helstu verkefni sem unnið hefur verið að hingað til og eru í vinnslu.
  • Hvatasjóður og hugmyndir að nýjum verkefnum.
  • Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir og Rakel Magnúsdóttir svæðisfulltrúar á Suðurlandi hafa framsögu.
  • Umræður og fyrirspurnir.

20:40 Hvað fleira er að frétta úr hreyfingunni?

  • Helgi S. Haraldsson varaformaður HSK fer yfir sviðið, talar um sjóðina og nefnir þau verkefni sem eru að fara af stað, sem snerta starfsemi félaga, s.s. stefnumótun hreyfingarinnar.
  • Umræður og fyrirspurnir.

21:00 Fundarslit

Það er von stjórnar HSK að sem flestir formenn og framkvæmdastjórar sjái sér fært að mæta á fundinn. Við viljum vita hvað von er á mörgum. Vinsamlegast tilkynnið mætingu á skráningarforminu https://forms.gle/zqKzYywa8dLMS2RY7

 

Mynd: Frá formannafundi HSK á síðasta ári.

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is