Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

7. apríl 2026

Svanur Ingvarsson er öðlingur ársins hjá HSK

Í rúm 30 ár hefur HSK valið öðling ársins og var valið kunngjört á héraðsþinginu á Borg í Grímsnesi á dögunum. Svanur Ingvarsson, Umf. Selfoss og Íþr.f. Suðra var útnefndur í ár, en hann hefur stundað íþróttir frá barnsaldri og hefur lengi tekið þátt í félagsstörfum í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni.

Svanur tók við viðurkenningunni á héraðsþinginu og þakkaði fyrir sig með snjallri ræðu.

Íþróttir 

Svanur fæddist í Vestmannaeyjum 1963.  Hann byrjaði snemma að stunda íþróttir, var farinn að æfa sund 8-9 ára gamall í Eyjum og á sín fyrstu verðlaun frá þeim tíma.

Eftir gosið á Heimaey 1973 flutti fjölskyldan á  Selfossi.  Þar var fljótlega farið að leggja stund á bæði sund og frjálsíþróttir.  Sumarið 1974 keppti hann á Andrésar andar leikunum í Kongsberg í Noregi, frjálsíþróttakeppni 11-12 ára barna af Norðurlöndunum.  Fjórir keppendur, stelpa og strákur úr hvorum flokki voru valin úr landsúrtaki. Að vísu var gerð undantekning þetta árið því tvíburabræðurnir vorum báðir sendir. Til gamans má geta þess að öll þrjú í 11 ára flokknum voru bekkjarsystkini. 

Með auknu æfingaálagi varð of mikið að vera í báðum greinum og varð sundið fyrir valinu.  Sundhópurinn var sterkur og má tala um ,,gullaldarlið” sem varð t.d. bikarmeistari 1981.  Svanur sagði sérstaklega skemmtilegt að keppa á Landsmótunum á þessum árum.  Farnar voru æfingaferðir til Danmerkur, Þýskalands og Spánar.

Upp úr tvítugu fór að draga verulega úr æfingum og keppni hjá Svani en hreyfing og útivist áfram stunduð.  Hann varð fyrir því óláni að lamast frá mitti í vinnuslysi 26 ára gamall, sem markaði í raun nýtt tímabil í íþróttunum hjá honum og í félagsmálunum.  Löng endurhæfing var honum í raun íþrótt.  Tæpu ári eftir slysið var hann mættur til keppni í sundi á stórum leikum fatlaðra á Englandi. Þá keppti hann í sundi í Noregi, Svíþjóð og á  Ólympíumóti fatlaðra í Barcelona 1992. 

Árið 1993 bauðst honum að keppa í sleðastjaki á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Lillehammer 1994. Hóf hann strax undirbúning, keppti og varð þar með fyrstur íslendinga til að keppa á Vetrarólympíumóti fatlaðra.  Hann varð því einnig fyrstur íslendinga til að keppa bæði á Sumar- og Vetrarólympíumótum fatlaðra.

Félagsmál

Svanur hefur alla tíð verið mjög virkur í félagsmálunum og er enn að.  Hann var lengi formaður sundnefndar HSK, næstum eitt ár framkvæmdastjóri HSK og framkvæmdastjóri Íþróttahátíðar HSK í Reykholti.  Árum saman var hann þulur á nær öllum sundmótum sem haldin voru á HSK svæðinu og starfar enn á flestum frjálsíþróttamótum á Selfossi. Hann var um tíma í stjórn Sundsambands Íslands. Suðri Íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi hafði legið í láginni.  Svanur hafði frumkvæði að því að koma starfinu af stað að nýju og var formaður þess í nokkur ár.  Hann er og hefur verið frá upphafi í Jólasveinanefnd Umf. Selfoss, eða í 49 ár.

Svanur hefur verið greinastjóri í sundi á Landsmóti UMFÍ, á 50+ mótum og mörgum Unglingalandsmótum á Selfossi, Þorlákshöfn, Hveragerði, Vík og tvisvar á Höfn.  Þá hefur hann verið þulur í sundi á ULM á Egilsstöðum og að Laugum.

Svanur hefur lengi verið í Vetraríþróttanefnd ÍF og tekið þar þátt í frumkvöðlastarfi.  Á þeim vettvangi hefur hann kennt á svigskíði og eða verið þátttakandi á námskeiðum í Kerlingafjöllum, Skálafelli, Bláfjöllum, Hlíðarfjalli, Klettafjöllunum og í Noregi.

Svanur var sæmdur fálkaorðunni þann 17. júní 2024 af forseta Íslands fyrir framlag sitt í þágu íþróttastarfs fatlaðra. Hann hefur hlotið heiðursviðurkenningar fyrir störf sín og framlag til íþróttamála innan hreyfingarinnar, s.s. Gullmerki ÍSÍ, Gullmerki HSK, Gullmerki ÍF, Gullmerki Umf. Selfoss og starfsmerki UMFÍ.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is