Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

7. apríl 2026

Anný og Gylfi sæmd gullmerki ÍSÍ

Anný Ingimarsdóttir, Umf. Þjótanda og Gylfi Þorkelsson, Körfuknattleiksfélagi Selfoss, voru sæmd gullmerki ÍSÍ á héraðsþingi HSK á Borg í Grímsnesi á dögunum.

Anný Ingimarsdóttir

Anný hefur setið í fjölmörgum nefndum á vegum HSK allt aftur til ársins 1990. Undanfarin 15 ár hefur hún setið í stjórn HSK og er ritari sambandsins. Anný var formaður Umf. Samhygðar í Hraungerðishreppi frá 1990 til 1993. Hún mætti á sitt fyrsta HSK þing fyrir hönd Samhygðar árið 1989 og hefur sótt flest þing sambandsins síðan þá. Hún hefur verið fulltrúi HSK á fjölmörgum þingum ÍSÍ og UMFÍ. Anný á að baki langan feril sem keppandi í frjálsum íþróttum og blaki og varð meðal annars þrefaldur Landsmótsmeistari í frjálsum í sínum aldursflokki á Landsmóti 50+ síðastliðið sumar.

Gylfi Þorkelsson

Gylfi hefur í áratugi verið virkur í íþróttastarfi bæði innan vallar og utan. Hann var meðal annars í liði Umf. Laugdæla sem varð Íslands- og bikarmeistari í blaki árið 1980. Hann er þó þekktari fyrir körfuknattleiksferil sinn en Gylfi lék í efstu deild með Val, ÍR og Keflavík og á árunum 1985 til 1987 lék hann 22 landsleiki fyrir Íslands hönd. Síðar var Gylfi spilandi þjálfari hjá Reyni Sandgerði, Umf. Laugdæla og Umf. Selfoss. Hann þjálfaði einnig yngri flokka á Selfossi og vann m.a. með þeim tvo Íslandsmeistaratitla. Gylfi var formaður körfuknattleiksdeildar Umf. Selfoss 1997 til 2004 og frá 2015 til 2023 var hann formaður Körfuknattleiksfélags FSu og Körfuknattleiksfélags Selfoss eftir að nafni félagsins var breytt vorið 2018.

Mynd: Anný og Gylfi ásamt Hafsteini Pálssyni, stjórnarmanni ÍSÍ. 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is