Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

8. apríl 2026

UMFÍ heiðraði fjóra einstaklinga úr Grímsnes- og Grafningshreppi

UMFÍ heiðraði fjóra einstaklinga úr Grímsnes- og Grafningshreppi á héraðsþinginu á Borg. Lísa Thomsen var sæmd gullmerki UMFÍ og Guðrún Ása Kristleifsdóttir, Kjartan Helgason og Hörður Óli Guðmundsson voru sæmd starfsmerki UMFÍ.

 

Gullmerki UMFÍ

Lísa Thomsen

Lísa Thomsen á Búrfelli fyrrverandi formaður Umf. Hvatar var sæmd Gullmerki UMFÍ fyrir áratugastarf fyrir ungmennafélagshreyfinguna. Lísa starfaði í áratugi fyrir Umf. Hvöt,  var lengi í stjórn félagsins og var formaður Hvatar á níunda áratugnum.

Lísa var mjög drífandi og mikill kraftur var í starfinu á þessum árum. Nefna má að á formannsárum hennar, árið 1986, hóf félagið að gefa út Hvatarblaðið, sem enn kemur út. Hún hafði frumkvæði að fleiri nýjungum í starfi félagsins, s.s skíðaferðum í Bláfjöll og Skálafell og þá tók hún þátt í að endurvekja glímuiðkun innan félagsins.

Lísa tók einnig þátt í störfum HSK til áratuga. Fyrsta verkefni hennar á þeim vettvangi, sem getið er um í 100 ára sögu HSK, er þátttaka í frægri Landgræðsluferð HSK árið 1967.

Hún var um tíma formaður sögu- og menningarnefndar HSK, en nefndin vann á þeim árum m.a. að því að gefa út 80 ára afmælisrit HSK sem kom út árið 1991.  Lísa átti sæti í sögu- og minjanefnd HSK frá 1993 – 2019 eða í 26 ár. Nefndarfólk í þeirri góðu nefnd vann mikið starf í tengslum við útgáfu á 100 ára sögu HSK sem kom út 2010.  Lísa, líkt og aðrir nefndarmenn, las allan texta yfir, safnaði myndum og heiðursáskriftum.  Lísa hélt áfram að taka að sér verkefni fyrir HSK og allt til ársins 2023 var hún ein af prófarkalesurum ársskýrslu HSK. Fyrir þessi störf og önnur fyrir HSK og hreyfinguna í áratugi var hún sæmd Gullmerki HSK árið 2012.

 

 

Þrjú starfsmerki UMFÍ

 

Guðrún Ása Kristleifsdóttir

Guðrún Ása var sæmd starfsmerki UMFÍ. Guðrún Ása, sem hefur verið búsett á Borg í um 10 ár, hefur tekið virkan þátt í starfsemi hreyfingarinnar um árabil. Hún hefur verið formaður Umf. Hvatar í átta ár, en hún tók við formennsku í mars 2018. Árið 2024 tók hún sæti í stjórn HSK og er einnig í Unglingalandsmótsnefnd HSK. Gása, eins og hún er jafnan kölluð, á sæti í stjórn frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og og þar sem annars staðar er hún dugleg að vinna þau sjálfboðaliðsstörf sem til falla.

 

Hörður Óli Guðmundsson

Hörður Óli, sem býr í Haga í Grímsnesi var sæmdur starfsmerki UMFÍ. Hörður Óli var lengi í forystusveit Umf. Hvatar, en hann var gjaldkeri félagsins í um tvo áratugi allt til ársins 2016. Á þeim árum mætti hann oft á héraðsþing HSK sem fulltrúi síns félags. Hörður Óli hefur lengi verið áhugamaður um glímu og þess má geta þess að hann hefur verið skoðunarmaður reikninga hjá Glímuráði HSK í um 25 ár, líklega frá stofnun ráðsins rétt fyrir aldamót og allt til þessa dags.

 

Kjartan Helgason

Kjartan bóndi í Haga í Grímsnesi  var sæmdur starfsmerki UMFÍ. Kjartan kom að því að endurvekja glímuna innan Umf. Hvatar  um 1980 og átti stóran þátt í endurreisn glímunnar innan HSK. Hann átti sæti í glímunefnd HSK um árabil.

Kjartan var nýlega sæmdur Gullmerki Glímusambandsins. Sjá frétt á https://glima.is/gullmerki-gli-kjartan-helgason/

 

Mynd: Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, sæmdi Lísu gullmerki UMFÍ og Guðrúnu Ásu starfsmerki UMFÍ.

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is