Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

27. apríl 2026

Umf. Ţórsmörk samţykkti á ađalfundi ađ ganga úr HSK

Stjórn HSK barst í febrúar tilkynning frá Umf. Þórsmörk, undirrituð af öllum stjórnarmönnum, þar sem greint var frá því að á aðalfundi Umf. Þórsmerkur, sem haldinn var 16. febrúar 2026, hafi verið samþykkt að ganga úr Héraðssambandinu Skarphéðni.

Í greinargerð kemur fram að lítil sem engin starfsemi hafi verið í Umf. Þórsmörk undanfarin ár og ekki fyrirsjáanlegt að breyting verði þar á í nánustu framtíð.

Í lögum HSK segir í 5. grein:

,,Vilji félag ganga úr sambandinu, telst úrsögn því aðeins lögmæt að hún hafi verið samþykkt á löglegum aðalfundi viðkomandi félags og miðist úrsögn við næstu áramót. Skriflega úrsögn skal senda til stjórnar HSK, sem síðan tilkynnir hana á héraðsþingi. Eigi getur félag, sem gengur úr sambandinu krafist endurgjalds á fé, sem það hefur lagt til sambandsins eða nokkurs hluta af eignum þess. Úrsögn viðkomandi félags er eigi tekin gild nema félagið sé skuldlaust við sambandið.”

Stjórn HSK tók erindið fyrir á stjórnarfundi í febrúar og eftirfarandi var bókað í fundargerð: ,,Stjórn HSK þakkar Umf. Þórsmörk fyrir farsæla samfylgd og gott samstarf á liðinni öld. Félagið var stofnað árið 1917 og hefur átt farsælan þátt í starfi héraðssambandsins.“

Samkvæmt 5. grein laga sambandsins mun HSK taka félagið af skrá sem eitt aðildarfélaga um næstu áramót.

Félagið hefur skilað starfsskýrslu ÍSÍ og UMFÍ vegna 2025. Síðasta verkefnið sem félagið þarf að sinna, vegna aðildar að HSK, er að skila skýrslu um starfsemi félagsins árið 2026, þar sem greint er frá ákvörðun aðalfundar félagsins í febrúar sl. Segja má að það verði kveðjugrein félagsins eftir rúmlega 100 ára ánægjulegt samstarf við HSK.

 

Deila

Tilbaka

Viđburđir

  • 10.05.2026 Ţing Borđtennissambands Íslands
  • 13.05.2026 Hérađsmót HSK í sundi
  • 17.05.2026 Ársţing Judósambands Íslands
  • 21.05.2026 Vormót HSK í frjálsum íţróttum
  • 04.06.2026 Hérađsleikar HSK í frjálsum íţróttum
  • 06.06.2026 Ársţing Glímusambands Íslands
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

24.04

Blak, hérađsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borđtennis, hérađsmót

21.03

Frjálsar, hérađsmót innanhúss

21.03

Frjálsar, hérađsleikar innanhú...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

13.05

Sund, hérađsmót

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

04.06

Frjálsar, hérađsleikar

14.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is