Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

27. maí 2026

Aðalfundur Glímuráðs HSK á mánudag

Aðalfundur Glímuráðs HSK verður haldinn í Selinu á íþróttavellinum á Selfossi mánudagskvöldið 1. júní kl. 20:00. Rétt til setu á fundinum eiga 15 fulltrúar frá sex aðildarfélögum glímuráðs HSK.  Aðrir eru velkomnir með málfrelsi og tillögurétt.  

Dagskrá fundarins samkvæmt lögum ráðsins er sem hér segir:

1.       Setning aðalfundar.

2.       Kosning fundarstjóra og ritara.

3.       Kosning kjörbréfanefndar og alsherjarnefndar.

4.       Skýrsla fráfarandi stjórnar.

5.       Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.  Einnig árstillög félaga ef til kemur.

6.       Tillögur og málefni sem borist hafa tekin til meðferðar.

7.       Kosning formanns ráðsins.

8.       Kosning ritara sem jafnframt er varaformaður

9.       Kosning gjaldkera.

10.     Kosning tveggja varamanna í stjórn og tveggja skoðunarmanna.

11.     Önnur mál.

12.     Fundarslit.

 

Samkvæmt 5. grein reglugerðar glímuráðs miðast fulltrúafjöldi félaga eða deilda innan HSK við keppendafjölda á landsmótum GLÍ.  Þannig komi einn fulltrúi fyrir hverja 5 keppendur eða brot úr 5 og telst hver keppandi einu sinni á ársgrundvelli.  Félög sem iðka glímu fá einn fulltrúa á aðalfund að auki.

Fulltrúafjöldi félaga er sem hér segir:

                                      Keppendur    Fulltrúar                   

Íþr.f. Dímon                        18              5       

Íþr.f. Garpur                       1                2                 

Umf. Biskupstungna          7                3

Umf. Hekla                        1                1                           

Umf. Laugdæla                 3                2                    

Umf. Þjótandi                    2                2

Samtals:                        32              15

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is