Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

10. júní 2026

Bláskógaskokk HSK á sunnudag

Bláskógaskokk HSK verður haldið á sunnudag, þann 14. júní 2026 og hefst kl. 11:00.

Hlaupin eru á skrá hjá ITRA og gefa Itrastig.  Facebook síða Bláskógaskokks.

 


 

Skráning

Skráning er opin á https://netskraning.is/blaskogaskokk/ til kl. 10:00 sunnudaginn 14. júní. Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir kl. 18:00 föstudaginn 12. júní. Frítt er í rútuna.

 

Þátttökugjald

7.000 kr fyrir 17 ára og eldri (fædd 2009 og fyrr)

1.000 kr fyrir 16 ára og yngri (fædd 2010 og síðar) 

Hlauparar fá frítt í sundlaugina á Laugarvatni í boði Bláskógabyggðar að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers.  (Framkvæmdum er ekki lokið hjá Fontana)
 

Aldursflokkar karla og kvenna

16 ára og yngri

17-39 ára

40-49 ára

50-59 ára

60-69 ára

70 ára og eldri

 

Afhending keppnisgagna

Númer verða afhent í verslun Fætur Toga Höfðabakka 3  í Reykjavík daginn fyrir keppnisdag frá kl. 11-16. Keppendur fá -20% af öllum Brooks vörum í Fætur Toga þegar þeir sækja gögnin. Einnig geta keppendur nálgast númer á keppnisdag frá kl. 9:00 – 10:10 í anddyri sundlaugarinnar á Laugarvatni.

Hlaupurum sem fara með rútu verður ekið í rútu frá Laugarvatni að rásmarki við Gjábakka (10 mílur) og á Laugardalvöllum (5 mílur) kl. 10:15.

 

Hlaupaleiðin

10 mílna hlaupið hefst við Gjábakka, austan Þingvallavatns og hlaupið eftir gamla Gjábakkaveginum að Laugarvatni.

5 mílna hlaupið er á sömu leið, byrjar á Laugardalvöllum og endar á Laugarvatni.

Tvær drykkjarstöðvar verða á hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður á meginhluta leiðarinnar.

 

 

Verðlaun

Allir þátttakendur sem ljúka hlaupunum fá verðlaunapening. Verðlaunaafhending verður við endamarkið.

 

Fætur Toga veita verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu og kr. fimmtíu þúsund inneign fyrir brautarmet í báðum vegalengdum. Einnig verða útdráttarverðlaun í boði Fætur toga.

Fontana veitir vegleg verðlaun fyrir HSK-met fullorðinna í báðum vegalengdum.

 

Brautarmet  

10 mílur/16 km

Martha Ernstsdóttir             01:00:35 sett 2006

Kári Steinn Karlsson           00:53:27 sett 2011

5 mílur/8 km

Björg Alexandersdóttir        00:37:28 sett 2020

Daníel Snær Eyþórsson       00:29:57 sett 2025


HSK met 

10 mílur/16km

Sigrún Sigurðardóttir          01:11:46 sett 2014

Sigurður Ingvarsson           01:06:25 sett 1998

5 mílur/8km

Fjóla Signý Hannesdóttir     00:41:37 sett 2025

Sigursveinn Sigurðsson       00:29:58 sett 2023

 

Þau sem vilja keppa til HSK-verðlauna vegna meta þurfa að skrá sitt félag af sambandssvæði HSK við skráningu í hlaupið og uppfylla skilyrði HSK um skráningu meta, sem sjá má á www.hsk.is. 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is