Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

1. júlí 2026

HSK/Selfoss Íslandsmeistari í frjálsum 15-22 ára

Lið HSK/Selfoss varð Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum 15-22 ára þegar MÍ 15-22 fór fram á Þórsvelli á Akureyri dagana 19.- 21. júní sl. UFA hélt mótið að þessu sinni og tókst vel til og mikið af efnilegusta frjálsíþróttafólki landsins mætti til leiks.

HSK/Selfoss sigraði heildarstigakeppni mótsins með 468 stig. ÍR varð í öðru sæti með 292 stig og UFA endaði í þriðja sæti með 238 stig. HSK/Selfoss varð sömuleiðis Íslandsmeistari í þremur aldursflokkum, 16-17 ára og 18-19 ára kvenna og 18-19 ára karla.
Fimm HSK met féllu á mótinu og þar náði Hjálmar Vilhelm Rúnarsson, Umf. Selfoss, meðal annars að bæta 46 ára gamalt héraðsmet Péturs Guðmundssonar, Umf. Samhygð, í kúluvarpi 17-18 ára pilta. Hjálmar Vilhelm sigraði í kúluvarpinu með kast upp á 14,59 m og bætti met Péturs um 73 sentimetra. Hjálmar Vilhelm tvíbætti sömuleiðis héraðsmetið í kringlukasti 18-19 ára pilta. Fyrra metið átti liðsfélagi hans Kristján Kári Ólafsson, 44,97 m. Hjálmar byrjaði á að kasta 46,56 m og bætti svo um betur með kast sem var 15 sm lengra. Hjálmar bætti svo þriðja Íslandsmeistaratitlinum í safnið með því að sigra í spjótkasti.

Bryndís Embla Einarsdóttir, Umf. Selfoss, varð Íslandsmeistari í spjótkasti og hún átti einnig sterka keppni í kúluvarpi þar sem sigraði með svakalegri bætingu þar sem hún tvíbætti HSK metið í flokki 16-17 ára. Fyrra metið átti systir hennar, Hildur Helga, 12,84 m en Bryndís bætti það með því að kasta 13,60 m og hún lengdi sig svo enn frekar með kasti upp á 13,88 m.

Ívar Ylur Birkissson, Íþf. Dímon, sigraði 100 m hlaupi og 110m grindarhlaupi í flokki 18-19 ára. Í grindinni kom hann í mark tímanum 14,07 sek, sem er undir héraðsmetinu í flokknum en meðvindur var of mikill og því ekki um bætingu að ræða.

 

 

Mynd: Lið HSK/Selfoss fagnar sigri á Akureyri.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is