Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

17. júlí 2026

Unglingalandsmót UMFÍ - Góð hugmynd

Þessa dagana eru margar fjölskyldur að velta fyrir sér hvert stefnan skuli tekin um verslunarmannahelgina. Margt er í boði vítt og breytt um landið og tilboðin mörg og spennandi. Ég er með ,,góða hugmynd” fyrir ykkur eins og 6 ára ömmustrákurinn minn segir gjarnan þegar verið er að skipuleggja hlutina. Takið stefnuna á Sauðárkrók að þessu sinni og skemmtið ykkur á Unglingalandsmóti UMFÍ.

Allt frá árinu 1992 hafa Unglingalandsmót UMFÍ verið haldin. Þau eru ein stærsta vímefnalausa íþrótta- og fjölskylduhátíð á Íslandi fyrir börn og ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára. Tilgangur þeirra er að efla samstarf og samheldni, hvetja til almennrar hreyfingar og skapa skemmtilega samveru í bland við keppni og skemmtun. 

Mótin eru opin öllum ungmennum óháð því hvort þau æfi íþróttir eða ekki. Ekki þarf að vera  skráð í íþróttafélag og val er um að koma með eigið lið eða taka þátt án þess að vera í liði en þá sjá mótshaldarar um að finna lið fyrir viðkomandi. Á mótinu er lögð áhersla á opið og jákvætt umhverfi og eiga allir að geta tekið þátt á eigin forsendum.

Keppt er í fjölda greina og boðið verður upp á skemmtilega fjölskyldu- og afþreyingar viðburði m.a. ævintýragarð, danskeppni, listasmiðjur, jóga, fjölskylduhlaup og sandkastalagerð. Frá  morgni til kvölds iðar mótssvæðið af lífi og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og því ætti engum að leiðast á Króknum um verslunarmannahelgina.

Unglingalandsmót er frábær viðburður í samfélagi okkar. Á mótunum gefast ungmennum góð tækifæri til að reyna á sig í leik og keppni, hitta vini og kunningja og ekki síst eignast nýja vini og kunningja. 

Landsmót eru öflug forvörn þar sem hreyfing og hollusta haldast í hendur. Hreyfing og keppni eru gulls ígildi og mótin hafa sannað að góð lýðheilsa er eitt mikilvægasta verkefnið í okkar velferðarríki. Munum að gott lýðheilsustarf snýst um virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Á Unglingalandsmótum er  markmiðið að hlúa að öllum og hverjum og einum gert kleift að njóta sín á eigin forsendum enda er það í takt við góða íþróttastefnu.

Ég hvet Sunnlendinga til að fjölmenna norður, í fjörðinn fagra, og taka þátt í ódýrri, heilbrigðri og skemmtilegri hátíð á Sauðárkróki, verslunarmannahelgina 2026.

Allar upplýsingar um mótið er hægt að nálgast á heimasíðu umfi.is. Skráningar á mótið þurfa að berast fyrir miðnætti sunnudaginn 26. júlí 2026.

Guðríður Aadnegard
formaður HSK

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is