Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

1. september 2026

30 keppendur frá HSK á Landsmóti UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit  og víðar síðustu helgina í júní sl. Mjög góð þátttaka var á mótinu en 366 einstaklingar skráðu sig í 791 grein.

Um 30 keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt  í fjölmörgum greinum, s.s boccia, bridds, golfi, pútti, frjálsíþróttum, ringói, sundi og stígvélakasti.

Töluverð fjölgun hefur verið í ringó í gegnum árin, en 16 lið voru skráð til leiks í ár. Ljóst er að pokavarp hefur líka slegið í gegn sem keppnisgrein því þátttakendur þar voru 37 talsins.

Mikill fjöldi skráði sig sömuleiðis á matar- og skemmtikvöldið, sem fram fór í mathúsinu Vitanum á Akureyri á laugardagskvöldinu. 

Af sambandsaðilum UMFÍ komu flestir þátttakendur á mótið frá Íþróttabandalagi Akureyrar, þeir voru 69 talsins og heimamenn voru næstflestir, alls 43, undir merkjum Ungmennasambands Eyjafjarðar. Góð þátttaka var sömuleiðis frá Héraðssambandinu Skarphéðni, sem heldur næsta mót á Hellu, Ungmenna- og íþróttasambandi Fjallabyggðar, sem hélt mótið á síðasta ári, Ungmennasambandi Borgarfjarðar  og Ungmennasambandi Kjalarnesþings.

Afar góð skráning var í margar greinar mótsins. Í ringó voru skráði 86 einstaklingar í 16 liðum, 111 kepptu í boccía í 35 liðum, 103 kepptu í pútti og 139 skráningar voru í frjálsar íþróttir. Keppendur í frjálsum taka iðulega þátt í fjölmörgum greinum frjálsra íþrótta og því er skráningartalan alla jafna hærri en í öðrum greinum.

Keppendur HSK komust á verðlaunapall í frjálsíþróttum, sundi, pútti og stígvélakasti. Hér að neðan er getið um landsmótsmeistara sem voru í keppnisliði HSK, samkvæmt skráningum inn á mótið. Hér að neðan má sjá þá sem unnu titil á mótinu.

Frjálsíþróttir:

Í frjálsum átti HSK landsmótsmeistara í nokkrum greinum. Guðmundur Jónasson sigraði í langstökki, 100 og 400m hlaupi í flokki 55-59 ára. Yngvi Karl Jónsson vann 100 metra hlaup í flokki 60-64 ára. Páll Jökull Pétursson keppti í flokki 65-69 ára og tók titil í kúluvarpi, hástökki, langstökki og þrístökk án atr. Í sama flokki mætti Kristinn Guðnason og vann titil í 100 metra hlaupi. Jón M. Ívarsson varð meistari í lóðkasti og þrístökki án atr. í flokki 75- 79 ára. Tvær konur kepptu í flokki 70-74 ára undir merkjum HSK. Árný Heiðarsdóttir vann kúluvarp, lóðkast og spjótkast og Emilía Fannbergsdóttir vann 400 metra hlaup.

Landsmótsmeistararnir Páll Jökull, Jón M., Árný og Emelía, auk Ragnheiðar Högnadóttur og Markúsar Ívarssonar settu samtals níu HSK met í fjórum aldursflokkum frá 55-79 ára. Upplýsingar um metin má sjá á www.hsk.is.

Stígvélakast
Síðasta grein mótsins er jafnan stígvélakast. Árný Heiðarsdóttir kastaði lengst kvenna í flokki 70 ára og eldri og tryggði sér titilinn.

Upplýsingar og úrslit í öllum greinum má sjá á vefsvæði Landsmóts UMFÍ 50+ á www.umfi.is.

Næsta mót á Hellu

Mótið á næsta ári fer fram á Hellu og það er Héraðssambandið Skarphéðinn sem sér um framkvæmd mótsins í samvinnu við Rangárþing ytra. Mótið fer fram helgina  25.-26. júní 2027.  

Mynd: Kristinn Guðnason Garpi og Páll Jökull Pétursson Selfossi kepptu í flokki 66-69 ára og urðu báðir Landsmótsmeistarar. Fyrir aftan þá sést í Jón Sævar Þórðarson, sem hafði frumkvæði að því að halda Unglingalandsmót UMFÍ.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 23.09.2026 Íþróttavika Evrópu
  • 30.09.2026 Fundur Framkvæmdanefndar Landsmóts 50+ 2027
  • 01.10.2026 Opið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is