Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

2. september 2026

Göngubók UMFÍ tilvalin fyrir komandi haustlitaferðir

Göngubók UMFÍ 2026 kom út fyrr í sumar. Í bókinni eru lýsingar á 277 stuttum gönguleiðum fyrir jafnt stutta sem langa fætur, 32 léttar fjallgönguleiðir fyrir alla fjölskylduna og ítarlegar lýsingar á fjölda gönguleiða vítt og breitt um landið. 

Göngubók UMFÍ hefur frá upphafi notið mikilla vinsælda meðal náttúruunnenda og útivistarfólks og hefur þróast mikið síðan hún kom fyrst út sumarið 2002. Þá voru í henni lýsingar á 144 gönguleiðum. Frá fyrstu útgáfu hefur bókin verið í sífelldri endurnýjun og endurspeglar sívaxandi áhuga Íslendinga á því að ferðast um sitt eigið land.

Upphaf göngubókarinnar má rekja til þess að umhverfisnefnd UMFÍ settist á rökstóla um aldamótin 2000 með það í huga að leita leiða til að efla þekkingu fólks á landi og náttúru Íslands, bæta umgengni og hvetja til aukinnar útivistar. 

Göngubókin þjónar ekki aðeins sem leiðarvísir um gönguleiðir um allt land. Hún er líka hvatning fyrir fólk til að fara af stað og bæta heilsu sína með ýmsum hætti sem fylgja útivist og hreyfingu. Í göngubókinni eru lýsingar á gönguleiðum, fjöldi korta með staðsetningum gönguleiða og ýmis ráð fyrir fólk á öllum aldri. Í göngubókinni er nú sem fyrrlögð áhersla á að gera útivist aðgengilega sem f lestum. Hvatt er til þess að fólk reimi á sig gönguskóna, opni bókina og hafi hana með sér í bakpoka eða jakkavasa í gönguferðunum. 

Nú er verið að dreifa Göngubók UMFÍ um allt land. Þú getur nálgast hana í sundlaugum, íþróttahúsum og helstu viðkomustöðum og nælt þér í ókeypis eintak.

Þú getur líka smellt á hlekkinn hér að neðan og gengið með bókina í símanum þar sem hægt er að fletta bókinni með mjög þægilegum hætti.

Það er aldrei of seint að reima á sig skóna og halda af stað út í náttúruna. 

Góða ferð!

Slóð á göngubókina: https://www.umfi.is/utgafa/goengubok/

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 23.09.2026 Íþróttavika Evrópu
  • 30.09.2026 Fundur Framkvæmdanefndar Landsmóts 50+ 2027
  • 01.10.2026 Opið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is