Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

2. september 2026

Árlegt Ólympíuhlaup ÍSÍ að hefjast

Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026 verður sett í Dalvíkuskóla á Dalvík fimmtudaginn 3. september. Grunnskólar um allt land geta staðið fyrir Ólympíuhlaupi ÍSÍ fram til áramóta og skráð þátttakendur í gegnum skráningarformið sem nálgast má á vef ÍSÍ. Þeir skólar sem skrá þátttöku fyrir 9. október gætu átt von á veglegum útdráttarverðlaunum.

Ólympíuhlaup ÍSÍ, sem áður hét Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi fjölmargra grunnskóla frá árinu 1984 þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn. Þessi viðburður er tengdur Íþróttaviku Evrópu / BeActive.

Markmið Ólympíuhlaups ÍSÍ er að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla þannig að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum. Áður gátu nemendur valið á milli 2,5 km, 5 km og 10 km vegalengda, en nú hafa skólar aukið svigrúm til að ákveða vegalengdir sjálfir með hliðsjón af aðstæðum og umhverfi hvers skóla.

Að hlaupi loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem fram kemur fjöldi þátttakenda og samanlögð vegalengd sem hlaupin var. Áherslan er fyrst og fremst á holla hreyfingu, þátttöku allra og að nemendur njóti þess að taka þátt.

Grunnskólar á sambandssvæði HSK eru hvattir til þátttöku. Þeir skólar sem skrá þátttöku fyrir 9. október fara í pott þar sem dregið verður um 150.000 króna gjafabréf frá Altis.

Skráning í Ólympíuhlaupið 2026

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 23.09.2026 Íþróttavika Evrópu
  • 30.09.2026 Fundur Framkvæmdanefndar Landsmóts 50+ 2027
  • 01.10.2026 Opið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is