Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Verkefnið Göngum í skólann

09.09.2026 - 09.10.2026

ÍSÍ hrindir af stað verkefninu Göngum í skólann í samstarfi við fjölda aðila miðvikudaginn 9. september næstkomandi. Verkefnið er nú haldið í tuttugasta sinn og hefur á þeim tíma orðið fastur liður í upphafi skólaárs hjá fjölmörgum grunnskólum landsins. Á hverju ári taka milljónir barna um allan heim þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Á Íslandi hefur þátttakan aukist jafnt og þétt frá upphafi verkefnisins. Fyrsta árið tóku 26 skólar þátt en árið 2025 voru þátttökuskólarnir alls 65. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að velja virkan ferðamáta til og frá skóla og efla um leið færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Einföld leið til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að ganga, hjóla, hlaupa eða nýta annan virkan ferðamáta. Ávinningurinn felst ekki aðeins í aukinni hreyfingu og bættri líðan heldur einnig í því að draga úr umferð og stuðla að umhverfisvænni samgöngum. Göngum í skólann hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður í mörgum skólum. Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að fræðast um umferðaröryggi, umhverfismál og mikilvægi hreyfingar á lifandi og skemmtilegan hátt. Skólar sem vilja taka þátt geta skráð sig á heimasíðu verkefnisins - http://www.gongumiskolann.is/skraning/ - Við skráningu þarf að tilgreina nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á því hvernig skólinn hyggst taka þátt í verkefninu. Göngum í skólann lýkur 7. október sem jafnframt er alþjóðlegur Göngum í skólann dagur árið 2026. Samstarfs- og styrktaraðilar verkefnisins eru European Commission, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, ríkislögreglustjóri og Slysavarnarfélagið Landsbjörg. Nánari upplýsingar veitir Linda Laufdal, verkefnastjóri á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ, í síma 514 4016 eða á netfanginu linda@isi.is.


Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 23.09.2026 Íþróttavika Evrópu
  • 30.09.2026 Fundur Framkvæmdanefndar Landsmóts 50+ 2027
  • 01.10.2026 Opið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is