Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Opið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð

01.10.2026 - 01.10.2026

Vakin er athygli á að opnað hefur verið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna ársins 2027. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna: Aðstöðuverkefna með sérstakri áherslu á verkefni sem styrkja umgjörð íþróttastarfs barna og ungmenna. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að eflingu faglegrar umgjarðar íþróttafélaga, einkum verkefni sem snúa að jaðarsettum hópum í íþróttum. Íþróttarannsókna. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga. Markmið Íþróttasjóðs er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu. Umsóknarfrestur er til kl. 15.00 fimmtudaginn 1. október 2026. Umsóknum skal skilað rafrænt. Á vef sjóðsins er að finna aðgang að umsóknarkerfi, leiðbeiningar fyrir umsækjendur, matskvarða, eyðublöð, lög og reglugerðir sjóðsins ásamt öðrum upplýsingum um umsóknarferlið. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum. Nánari upplýsingar um Íþróttasjóð má finna á: https://island.is/ithrottasjodur Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfanginu ithrottasjodur@rannis.is eða í síma 699 2522. Allir umsækjendur eru hvattir til að skila umsóknum með góðum fyrirvara og bíða ekki fram á síðustu stundu enda getur tekið tíma að ganga frá umsókn og fylgigögnum.


Viðburðir

  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 10.10.2026 Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Ísland..
  • 13.10.2026 Styrkir í þágu farsældar barna
  • 28.10.2026 Skráningar á Héraðsmót karla og kvenna í blak..
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • 01.11.2026 Syndum - Landsátak í sundi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.11

Blak, héraðsmót kvenna

05.11

Blak, héraðsmót karla

07.11

Bridds, sveitakeppni HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is