Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Afreksbúðir ÍSÍ fyrir ungt íþróttafólk

14.11.2026 - 14.11.2026

Afreksmiðstöð Íslands stendur fyrir Afreksbúðum fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk innan sérsambanda ÍSÍ. Fyrsti fræðslufyrirlesturinn að þessu sinni fer fram laugardaginn 14. nóvember kl. 12:00 til 13:30 í fundarsal B og C á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Afreksbúðirnar eru ætlaðar íþróttafólki á aldrinum 15 til 20 ára, árgöngum 2006 til 2011, sem er meðal annars í hæfileikamótun, afrekshópum og unglingalandsliðum sérsambanda. Hafa skal í huga að búðirnar eru ætlaðar ungu íþróttafólki á afreksstigi í sinni íþróttagrein. Sérsambönd bera ábyrgð á skráningu þátttakenda og hafa fengið sendar upplýsingar um hana. Skráningarfrestur er til og með 6. nóvember. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við sitt sérsamband. Fyrirlesarar 14. nóvember: Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, fjallar um afreksmanneskjuna og hvernig við byggjum upp sterkan einstakling. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður, fjallar um hvernig best er að koma fram í fjölmiðlum og veitir þátttakendum dýrmæta innsýn og hagnýt ráð.


Viðburðir

  • 19.11.2026 Ráðstefna um íþróttastarf barna
  • 20.11.2026 Formannafundur ÍSÍ 2026
  • 20.11.2026 Fjórðungsglíma Suðurlands
  • 24.11.2026 Skráningarfrestur á útgáfuhóp skýrslunnar Rad..
  • 26.11.2026 Ungt fólk hefur talað, hvað ætlum við að gera..
  • 05.12.2026 Íþróttaeldhugi ársins 2026, óskað eftir tilne..
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

20.11

Fjórðungsglíma Suðurlands

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is