Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Um HSK

Skrifstofa HSK

Héraðssambandið Skarphéðinn er samband allra íþrótta- og ungmennnafélaga í Árnessýslu og Rangárvallasýslu. HSK var stofnað í Hjálmholti 14. maí 1910 og innan þess voru þá 19 ungmennafélög með 810 félagsmönnum.

HSK hélt sitt fyrsta héraðsmót í Þjórsártúni 9. júlí 1910 og þar var m.a. keppt um veglegan silfurskjöld, Skaphéðinsskjöldinn, sem sigurvegarinn í glímu hlaut og enn er keppt um.  Þetta var upphafið að farsælu mótahaldi HSK sem hefur staðið óslitið síðan.  

Í dag eru haldin um 60 héraðsmót í 17 mismunandi íþróttagreinum og þá hefur HSK tekið að sér framkvæmd ýmissa stórmóta, nú síðast Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið var á Selfossi um síðustu verslunarmannahelgi.

Undir merkjum HSK og félaganna hafa þúsundir sunnlenskra ungmennafélaga stundað íþróttir, skógrækt, leiklist og samkomuhald svo eitthvað sé nefnt.

Óhætt er að telja HSK með sína fjölbreyttu æskulýðs- og íþróttastarfsemi einn af hornsteinum mannlífs á Suðurlandi.

Í dag eru 55 aðildarfélög innan HSK, um er að ræða 19 ungmennafélög, 13 golfklúbba, fimm hestamannafélög, átta íþróttafélög, þrjú knattspyrnufélög, tvö akstursíþróttafélög, tvö skotíþróttafélög, eitt karatefélag, eitt körfuknattleiksfélag og eitt lyftingafélag.

Félagsmenn eru samtals rúmlega 21 þúsund og íþróttaiðkendur rúmlega 15 þúsund.  Flestir iðkendur eru í golfi og þar á eftir koma hestaíþróttir og knattspyrna.  Hjá sambandinu eru 27 nefndir, stjórnir og ráð starfandi sem m.a. vinna að íþróttum, félagsmálum og útbreiðslustörfum. 




Deila

Viðburðir

  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • 26.06.2025 Íslandsmót í hestaíþróttum á Selfossi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is