Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Reglugerð fyrir farandverðlaunagripi HSK

1. gr.

Reglugerð þessi nær til allra farandverðlaunagripa, sem keppt er um innan H.S.K. og veittir eru fyrsta sinni eftir ársbyrjun 1964.

2. gr.

Í sérstaka bók skal skrá: a) Tegund verðlaunagripa. b) Fyrir hvað þeir eru veittir. c) Nöfn gefenda. d) Á hvaða móti eða mótum verðlaunagripirnir vinnast og hvar þeir vinnast. e) Nafn vinnanda.

3. gr.

Allir farandverðlaunagripir til handa einstaklingum vinnast til eignar eftir þrjú skipti í röð eða fimm sinnum alls. Farandverðlaunagripir ætlaðir félögum vinnast til eignar eftir fimm ár í röð eða tíu sinnum alls. Hverri úthlutun fylgir ágrafinn verðlaunapeningur. Hægt verður að semja reglugerð um hvern grip fyrir sig ef gefanda sýnist svo. Eldri verðlaunagripir falla undir þessa reglugerð nema þeim fylgi sérstakar reglur.

4. gr.

Verðlaunagripum skal skila óskemmdum til H.S.K. í síðasta lagi á næsta mótsstað, þar sem keppt er um gripinn að nýju, og ekki seinna en fjórtán mánuðum eftir vinningsdag. Vinnandi skal sjá um að á gripinn sé grafið, á kostnað H.S.K., ártal og nafn vinnanda hverju sinni.

5. gr.

Við andlát vinnanda eða félagsslit skal verðlaunagrip skilað til H.S.K., sem ráðstafar honum til vörslu.

6. gr.

Efamálum um gripina skal vísað til stjórnar U.M.F.Í., eða aðila sem það tilnefnir.

7. gr.

Eintak af reglugerð þessari skal fylgja hverjum verðlaunagrip við afhendingu.

8. gr.

Reglugerð þessi öðlist gildi strax eftir samþykki héraðsþings.

Tilbaka 

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is