Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

25. júlí 2012

Ágætu félagar

Nú eru eingöngu 9 dagar í að Unglingalandsmót UMFÍ hefjist á Selfossi og lokaundirbúningur mótsins í fullum gangi.  Sveitarfélagið Árborg hefur staðið mjög myndarlega að öllum undirbúningi með framkvæmdanefndinni auk þess að lagfæra mannvirki og búa bæinn í hátíðarbúning og ber að þakka hve vel er staðið að öllum undirbúningi.  Skráningar ganga vel og mikill áhugi er fyrir mótinu

Nú er komið að okkur heimamönnum að taka þátt í undirbúningi og framkvæmd mótsins.  Við þurfum á miklum fjölda sjálfboðaliða að halda til að vinna á mótinu.  Um er að ræða margvísleg störf, allt frá framkvæmd íþróttakeppninnar, undirbúning, uppsetningu, frágang, öryggisgæslu á tjaldsvæðum og keppnissvæðum og allskyns viðvik.  Margir hafa brugðist vel við kalli en enn vantar fólk til starfa.  Því vil ég hvetja ykkur til að bjóða ykkur fram, enda mun ykkar félag eða deild njóta ávinnings af ykkar starfi og með því styrkjum við uppeldis- og íþróttastarfið okkar sem er ómetanlegt fyrir börnin okkar og samfélagið allt. 

Unglingarnir okkar eiga að sjálfsögðu að nýta þetta góða tækifæri og skrá sig til skemmtilegrar keppni og og etja kappi við jafnaldra sína í harðri en heiðarlegri keppni, taka þátt í viðburðum mótsins og upplifa þá stemmingu sem fylgir þátttökunni. 

Unglingalandsmót er vímulaus hátíð allrar fjölskyldunnar með börnin og unglingana í fyrirrúmi.  Ég vil sérstaklega hvetja sunnlendinga alla til að koma á mótið, mæta á íþróttakeppnirnar og hvetja keppendur á jákvæðan og heiðarlegan hátt, mæta á setningu mótsins á föstudagskvöldinu 3. ágúst kl. 20 og mótsslitin á sunnudagskvöld rétt fyrir miðnætti. 

Ykkur öll hvet ég til að koma á mótið og njóta þess að vera þátttakandi í vímulausri fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina.

 

Sjáumst á Selfossi – með bros á vör!

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is