Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

23. apríl 2013

Landsmót UMFÍ á Selfossi 4. ? 7. júlí, með bros á vör

Nú eru eingöngu rúmir tveir mánuðir þar til 27. Landsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi dagana 4. – 7. júlí nk.  Í kjölfar vel heppnaðs Unglingalandsmóts UMFÍ um síðustu verslunarmannahelgi, býður HSK í samvinnu við sveitarfélagið Árborg til stórviðburðar sem hefur oft gengið undir heitinu „íslensku ólympíuleikarnir“.  Keppnisrétt á landsmóti eiga keppendur sem héraðssambönd og íþróttabandalög um allt land velja til keppni í þeim 25 keppnisgreinum sem eru á mótinu og öruggt er að í öllum greinum verður spennandi og skemmtileg keppni. 

Við á Selfossi búum að frábærri íþróttaaðstöðu, tjaldsvæðum og skólamannvirkjum sem fengu mikið lof þátttakenda og foreldra sem sóttu Unglingalandsmótið í fyrra.  Þá klæddu heimamenn bæinn í hátíðabúning og tóku afar vel á móti gestum með jákvæðu viðmóti sem mæltist mjög vel fyrir.

Undirbúningur keppnisgreina er auðvitað í fullum gangi og framkvæmdanefnd mótsins hefur fengið til liðs við sig öflugan hóp sérgreinastjóra sem eru að skipuleggja keppni í hverri grein.  Upplýsingar um keppnisgreinar má sjá á heimasíðu Ungmennafélags Íslands; umfi.is.  Við höfum ákveðið að þjappa mótshaldinu í meira mæli inn á laugardag og sunnudag þannig að úrslitaviðureignir í flestum greinum fari fram um helgina og þá verði virkilegur hápunktur mótsins bæði fyrir þátttakendur og gesti.  Til viðbótar við hina eiginlegu keppnisdagskrá viljum við nýta tækifærið og sýna keppendum og gestum hvað sunnlensk menning hefur uppá að bjóða.  Við hvetjum heimamenn og áhugamenn að gefa sig fram til HSK (sími 482 1189 og tölvupóstur hsk@hsk.is) með skemmtilega og skapandi viðburði sem geta lífgað upp á mannlífið á mótinu.

Til þess að framkvæma mótið þurfum við á miklum fjölda sjálfboðaliða að halda.  Við framkvæmd Unglingalandsmótsins í fyrra skiluðu sjálfboðaliðar 8,096 klst. í vinnu, eða 4,4 mannárum og þörfin er ekki minni núna.  Því hvetjum við aðildarfélög og einstaklinga til að taka á með okkur og bjóða fram krafta sína til vinnu við mótið, hvort sem er við framkvæmd íþróttakeppninnar, gæslu og þjónustu við keppendur og gesti.  Auðvitað hvetjum við einnig sunnlendinga alla til að koma og njóta þess að taka þátt í og fylgjast með stórviðburði í íþróttalífinu og upplifa þá einstöku stemmingu sem skapast á Landsmótum UMFÍ þar sem afreksfólk úr 25 íþróttagreinum, sumum óhefðbundnum, takast á af drengskap í heiðarlegri keppni.

Við megum búast við miklum fjölda keppenda og gesta á mótið og þannig verður líf og fjör á Selfossi 4. – 7. júlí.  Við, sem undirbúum mótið, óskum auðvitað eftir góðri samvinnu við heimamenn, fyrirtæki og einstaklinga að taka þátt í mótshaldinu bæði á beinan hátt og eins óbeinan með því að taka á móti gestum með bros á vör.

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is