Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

8. maí 2013

Undirbúningur frjálsíţróttaliđs HSK fyrir Landsmót UMFÍ

Sá er þetta ritar hefur tekið að sér að undirbúa keppnislið HSK í frjálsíþróttum sem taka mun þátt í Landsmóti UMFÍ á Selfossi 4. – 7. júlí nk.

Það verður tekið vel á því fram á landsmóti hvað varðar æfingar og hópefli. Fyrsta formlega æfingin fór fram á kosningadaginn á Selfossvelli og var ágæt mæting  eða 15 manns og gekk æfingin vel.  Farið var í hlaup, stökk og köst.

Ætlunin er að halda liðsfund að loknu Vormóti HSK sem verður á Hvítasunnudag, 19. maí kl. 13:00 (fundurinn ca. 15:30). Svo eru á dagsrkánni tvær æfingar í júní, miðvikudaginn 5. júní kl. 18:00 - 20:00 og þriðjudaginn 25. júní á sama tíma. Þarna á milli er t.d. héraðsmót HSK í frjálsum 18. - 19. júní og er það viðburður sem liðstjóri horfir í við endanlegt val í Landsmótsslið. Síðan er ætlunin að hittast á stuttum peppfundi þriðujudagskvöldið 2. júlí, að lokinni æfingu, og taka síðasta pepp fyrir Landsmót.  Það eru um 50 manns í Landsmótsliðsdrögum sem undirrtaður er nýbúinn að  taka saman. Hópurinn samanstendur af ungum og efnilegum einstaklingum sem og af reynslumeira fólki sem án efa peppar hópinn. Þessir einstaklingar hafa allir fengið boð um þátttöku í landsmótshópi HSK.

Markmiðið er skýrt fyrir frjálsíþrottakeppni Landsmótsins; það er sigur í stigakeppninni í frjálsum. Svo verður að koma í ljóst hvort það tekst eður ei.

En sem sagt spennandi tveir mánuðir framundan í undirbúningi fyrir Landsmót UMFÍ 4. -7. júlí í sumar.

 

Ólafur Guðmundsson,

liðstjóri frjálsíþróttaliðs HSK.

Viđburđir

  • 16.05.2025 Íţróttaţing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuđning sveitarfélaga viđ íţ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóđ
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • 26.06.2025 Íslandsmót í hestaíţróttum á Selfossi
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, hérađsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Hérađsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is